- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Rúnar fær Palicka til liðs við sig

- Auglýsing -

Sænski markvörðurinn Andreas Palicka gengur í vikunni til liðs við HSG Wetzlar, hvar Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Þýski miðillinn Sport Bild greinir frá því að Palicka hafi samþykkt að skrifa undir samning við Wetzlar út tímabilið og ganga svo til liðs við Füchse Berlín í sumar eins og áður hafði verið tilkynnt um.

Wetzlar hefur unnið að skiptunum að undanförnu en til þess að þau gætu gengið í gegn þurfti Palicka að fá samningi sínum við norska félagið Kolstad rift, svo honum væri unnt að skipta til Wetzlar áður en félagaskiptaglugganum verður lokað næstkomandi sunnudag.

Krækir Rúnar í Palicka fyrir lokasprettinn?

Sport Bild skýrir frá því að Kolstad og Palicka hafi komist að samkomulagi um riftun og að því geti sænski reynsluboltinn gengið formlega til liðs við Wetzlar á morgun.

Wetzlar er í harðri fallbaráttu í efstu deild Þýskalands, í 17. og næstneðsta sæti, og bindur Wetzlar með Rúnar í broddi fylkingar vonir við að Palicka geti lagt sitt af mörkum til þess að forða liðinu frá falli niður í B-deild.

Þrengingar hjá Kolstad

Kolstad, sem er með bækistöðvar í Þrándheimi, er í miklum fjárhagsþrengingum og hefur farið þess að leit við leikmenn að þeir taki á sig töluverða lækknun launa. Palicka var með samning við Kolstad til vorsins 2027 og er sagður hafa verið launahæsti leikmaður félagsins. Þrálátur orðrómur hefur verið uppi síðan fyrir áramót að Palicka gangi til liðs við Füchse Berlin í sumar. Hvort sem það er rétt eða ekki er ljóst að hann ætlar að verja mark Wetzlar næstu mánuði.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -