„Við ætlum að enda þessa umfjöllun á snúningi ársins,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon í Handboltahöllinni á Handboltapassanum í gærkvöldi. Þar vísaði hann til glæsilegs snúnings á boltanum í marki Færeyingsins Bjarna í Selvindi í stórsigri Vals á Aftureldingu í 17. umferð Olísdeildar karla.
„Þetta er ekki á margra manna færi. Hefðir þú náð þessu úr horninu Vignir?“ spurði Ásbjörn Friðriksson og beindi spurningu sinni til Vignis Stefánssonar. Báðir eru þeir sérfræðingar Handboltahallarinnar.
„Það væri bara skrítið ef ég myndi segja já. Það hljómar eitthvað svo illa,“ svaraði Vignir.
„Ég hefði aldrei náð þessu,“ bætti Ásbjörn við.
Einkar glæsilegt mark Bjarna í Selvindi og frekari umræðu um það má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.



