- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tæpir tveir milljarðar í uppbyggingu íþróttastarfs 2026 – framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneyti:

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Áhersla er á að bæta og jafna tækifæri fólks til íþróttaiðkunar, einkum á landsbyggðinni, og að styðja betur við afreksíþróttafólk. Heildarfjárframlagið í samningunum fimm nemur samtals um 1,8 milljarði króna.


Samningarnir eru eftirfarandi:

  1. Styrktarsamningur um uppbyggingu afreksíþróttastarfs – 1.035 m.kr.
  2. Styrktarsamningur um uppbyggingu svæðisstöðva íþróttahéraða – 52 m.kr.
  3. Samningur við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) – 509,4 m.kr. (rekstrarsamningur 177,5 m.kr; stuðningur til reksturs sérsambanda 105 m.kr; Ferðasjóður íþróttafélaga 226,9 m.kr.)
  4. Rekstrarsamningur við Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) – 138,9 m.kr.
  5. Rekstrarsamningur við Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) – 40,9 m.kr.

Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru átta talsins um allt land. Stuðningur við þær áfram er mikilvægt skref til þess að tryggja samstarf, þróun og eflingu íþróttastarfs um allt land. Þær vinna jafnframt að því að auka framboð íþrótta fyrir börn með fatlanir, með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn og af tekjulægri heimilum. Samningnum er ætlað að ljúka fjármögnun verkefnisins út árið 2026 og hefst samhliða undirritun samningsins nú, vinna sem miðar að því að tryggja langtímafjármögnun þeirra.

„Við viljum jafna tækifæri til íþróttaiðkunar um allt land og nýta íþróttir til að byggja upp sterka einstaklinga, koma í veg fyrir félagslega einangrun og beisla forvarnarmátt íþrótta. Þar gegnir einnig okkar afreksfólk mikilvægu hlutverki sem fyrirmyndir,“ segir Inga Sæland, nýr ráðherra íþróttamála.

Framlag til Ferðasjóðs nær tvöfaldast með 100 m.kr. hækkun og er sjóðurinn því nú 226,9 m.kr. Hækkunin miðar að því að ferðakostnaður komi ekki í veg fyrir íþróttaiðkun og þátttöku á mótum, einkum fyrir íþróttafólk á landsbyggðinni.

„Umfang og ábyrgð íþróttahreyfingarinnar hefur aldrei verið meira og fram undan er markviss stefnumótun til að efla forvarnir, styrkja lýðheilsu og bæta aðgengi. Samningurinn sem hér er undirritaður styrkir vel þá vegferð,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. „Starfsemi svæðisstöðva styður inngildingu og jöfn tækifæri um allt land, og aukið framlag til Ferðasjóðs dregur úr fjárhagslegum hindrunum á þátttöku og eflir keppnisþátttöku í öllum landshlutum. Áfram er lögð rík áhersla á faglega uppbyggingu afreksíþrótta til að tryggja okkar besta og efnilegasta íþróttafólki sterk starfsskilyrði, og um leið er mikilvægt að hlúa að öflugu og fjölbreyttu grasrótastarfi sem myndar grunn íþróttahreyfingarinnar.“

Samningur um afreksíþróttir styður við nýja Afreksmiðstöð Íslands og innleiðingu nýs fyrirkomulags afreksstarfs í íþróttum. Markmiðið er að tryggja og fjármagna faglega umgjörð til að gera okkar efnilegasta íþróttafólki kleift að skara fram úr.

Jóhann Steinar leggur áherslu á að samningarnir marki vörðu á vegferð aukinnar samvinnu í íþrótta- og æskulýðsstarfi. „Nú þegar íþróttahreyfingin er nýbúin að hefja sameiginlega vegferð að heildarstefnumótun fyrir hreyfinguna er ánægjulegt að samningarnir nú eru undirritaðir á þessum sameiginlega viðburði, því reynslan sýnir að samstarf skilar árangri. Við horfum björtum augum til framtíðar og erum spennt fyrir því að takast á við verkefnin með gleðina að leiðarljósi.”


Jafnframt var gengið frá rekstrarsamningum við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Íþróttasamband fatlaðra.

„Við erum ævinlega þakklát fyrir allan stuðning við fjölgun tækifæra fyrir iðkendur með fötlun í íþróttum og aukið aðgengi þeirra að öllum íþróttafélögum landsins. ÍF vinnur að því í samstarfi við UMFÍ og ÍSÍ að fjölga tækifærum fyrir alla. Stjórnvöld hafa unnið með okkur á aðdáunarverðan hátt að samstarfsverkefninu Allir með, sem íþróttahreyfingin kemur að ásamt þremur ráðuneytum, þar á meðal mennta- og barnamálaráðuneytinu. Það sannar að þegar fólk stendur saman þá gengur allt betur,“ segir Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -