- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Molakaffi: Martín, Gomes, Søndenå, Simic

- Auglýsing -
  • Ambros Martín þjálfari spænska kvennalandsliðsins í handknattleik hefur tekið að sér að þjálfa Al-Duhail í Doha í Katar. Martín hefur fram til þess þjálfað kvennalið, s.s. ungverska liðið Györi og Rostov-Don í Rússlandi auk þess að þjálfa kvennalandsliðs Rússlands og Rúmeníu og nú síðast spænska landsliðið. Síðast þjálfaði Martín kvennalið Krim Ljubljana keppnistímabilið 2024/2025.
  • Portúgalski handknattleiksmaðurinn João Gomes sem gekk til liðs við Gummersbach á liðnu sumri hefur verið leigður til FC Porto og verður þar með samherji Þorsteins Leós Gunnarssonar. Gomes hefur ekki fallið að leik Gummersbach og ýmsum ástæðum. 
  • Norski handknattleiksmaðurinn Magnus Søndenå kveður Kolstad í sumar og gengur til liðs við PAUC í Frakklandi á tveggja ára samningi. Søndenå er enn einn leikmaðurinn sem ákveður að kveðja Kolstad-liðið sem á í miklum fjárhagskröggum. 
  • Svartfellski landsliðsmarkvörðurinn Nebojsa Simic sneri til baka út á leikvöllinn í gærkvöld með þýska liðinu MT Melsungen. Hann hefur verið fjarri góðu gamni í 298 daga vegna krossbandaslits. Simic  kom inn á leikvöllinn í 15 sekúndur í leiknum til þess að verja eitt vítakast sem honum lánaðist ekki að verja i 29:26 sigri Melsungen í heimsókn til Bergischer HC.

Gísli, Ómar og félagar halda uppteknum hætti

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -