Mikil ólukka dundi yfir tvo leikmenn HK í einni og sömu vörn þegar liðið tapaði 36:31 fyrir ÍR í Olísdeild karla á mánudagskvöld. Aron Dagur Pálsson fór þá úr axlarlið og hnéskel Leós Snæs Péturssonar fór nánast í sömu andrá úr lið.
Handkastið greinir frá. Meiddust þeir snemma leiks, í stöðunni 4:4, og höfðu Aron Dagur og Leó Snær þá skorað sín hvor tvö mörkin fyrir HK.
Báðir segja þeir óvissu ríkja um hvenær þeir megi eiga von á því að snúa aftur á völlinn. Í samtali við Handkastið sagði Aron Dagur að honum hafi fljótt aftur verið kippt í axlarlið.
Leó Snær sagðist vonast til þess að allt annað í hnénu væri í lagi og að hann hefði ekki tölu á því hversu oft hnéskel hans hafi áður farið úr lið.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.


