Íslendingalið TTH Holstebro mátti gera sér eitt stig að góðu gegn Fredericia er liðin skildu jöfn, 29:29, í dramatískum leik í dönsku úrvalsdeild karla í Holstebro í kvöld. Holstebro virtist eiga sigurinn vísan en glutraði niður forskoti sínu undir lok leiks.
Arnór Atlason þjálfar Holstebro og Jóhannes Berg Andrason leikur með liðinu. Jóhannes skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir Holstebro í kvöld.
Holstebro var tveimur mörkum yfir, 28:26, þegar fáeinar mínútur voru eftir af leiknum. Fredericia jafnaði metin í 29:29 undir blálokin og Holstebro átti svo síðasta skot leiksins þremur sekúndum fyrir leikslok en það var varið.
Holstebro er áfram í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar, nú með 21 stig. Fredericia er í tíunda sæti með 16 stig. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppni um danska meistaratitilinn.


