Þýska félagið HSG Wetzlar hefur tilkynnt formlega um komu sænska markvarðarins Andreas Palicka frá norska félaginu Kolstad. Palicka fékk samningi sínum í Noregi rift og samdi út yfirstandandi tímabil hjá Wetzlar, þar sem Rúnar Sigtryggsson er þjálfari. Um leið tilkynnti Füchse Berlín að Palicka gangi til liðs við félagið í sumar.
Um sannkallaðan hvalreka er að ræða fyrir Wetzlar sem rær nú lífróður í þýsku 1. deildinni. Vonir standa til þess að gífurleg reynsla og hæfileikar Palicka komi til með að hjálpa liðinu að halda sæti sínu á meðal þeirra bestu.
„Ég er hæstánægður að vera kominn hingað til HSG Wetzlar og aftur í þýsku deildina. Ég er þakklátur fyrir traustið sem félagið sýnir mér. Ég vil hjálpa til og gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að sjá til þess að við höldum okkur saman í deildinni,“ sagði Palicka í samtali við heimasíðu HSG Wetzlar.
Wetzlar er sem stendur í 17. sæti af 18 liðum með aðeins sjö stig eftir 20 leiki. Tvö neðstu liðin falla niður í B-deild og er Wetzlar þremur stigum frá öruggu sæti þegar 14 umferðir eru enn óleiknar á tímabilinu.
Palicka spilaði um langt árabil með THW Kiel og Rhein-Neckar Löwen í þýsku 1. deildinni auk þess að ganga til liðs við Füchse Berlín í sumar. Kann hann því sannarlega vel við sig í deildinni.



