Rasmus Lauge, sem varð Evrópumeistari með Danmörku fyrr í mánuðinum, hefur misst af fyrstu tveimur leikjum Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni eftir EM-pásu þar sem hann er að glíma við meiðsli í baki.
Lauge, sem er 34 ára leikstjórnandi og sterkur varnarmaður, kvaðst argur yfir því að geta ekki spilað vegna þess sem hann kallaði smávægilegt brjósklos.
„Því miður er ég að glíma við smávægileg meiðsli í bakinu sem þýða að ég verð frá í einhvern tíma. Myndataka leiddi í ljós að þetta væri smávægilegt brjósklos. Auðvitað er ég mjög þreyttur á þessu. Þetta er mjög pirrandi en svona er þetta,“ sagði Lauge í samtali við TV 2 Sport.
„Ég er virkilega pirraður,“ sagði hann einnig í samtali við Midtjyllands Avis. Kvaðst Lauge ekki vita nákvæmlega hversu lengi hann verður frá.


