- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingaliðið reiðir fram háa fjárhæð fyrir markvörðinn knáa

- Auglýsing -

Íslendingalið SC Magdeburg mun samkvæmt þýskum miðlum festa kaup á króatíska markverðinum Dominik Kuzmanovic frá öðru Íslendingaliði, VfL Gummersbach, í sumar. Sport Bild greinir frá því að upphæðin sem Magdeburg reiðir fram verði dágóð.

Kuzmanovic mun mynda markvarðapar með landa sínum og jafnaldra Matej Mandic hjá Magdeburg, sem greiðir 500.000 evrur fyrir þann fyrrnefnda, jafnvirði 72 milljóna kr. Báðir eru þeir 23 ára gamlir.

Íslendingaliðið verður með króatískt markvarðapar


Sú upphæð getur svo hækkað upp í 700.000 evrur, jafnvirði tæplega 102 milljóna íslenska króna, að ýmsum ákvæðum uppfylltum.

Takist að uppfylla þessi ákvæði verður um eina af hæstu upphæðum sem félag hefur greitt fyrir leikmann innan þýsku 1. deildarinnar að ræða.

Töluvert frá metupphæðinni

Hún er þó talsvert frá metupphæðinni sem greidd hefur verið fyrir handboltamann. THW Kiel borgaði Industria Kielce frá Póllandi 1,6 milljónir evra fyrir annan markvörð, þýska tröllið Andreas Wolff, árið 2024.


Með Magdeburg leika Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson. Með Gummersbach leika Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson auk þess sem Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -