- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sögulegt hjá Gidsel, Reistad og Costa

- Auglýsing -

Alþjóðahandknattleikssambandið, IFH, tilkynnti í dag að Daninn Mathias Gidsel hafi verið kjörinn besti handknattleikskarl heims árið 2025. Er þetta þriðja árið í röð sem Gidsel hlýtur nafnbótina. Engum leikmanni hafði áður tekist að vinna til verðlaunanna þrjú ár í röð.

Hin norska Henny Reistad var kjörin besta handknattleikskona heims árið 2025. Er það einnig þriðja árið í röð sem hún vinnur til verðlaunanna og er hún sömuleiðis fyrsta konan sem afrekar að vinna svo oft í röð.


Portúgalinn Francisco Costa var kjörinn besti ungi handknattleikskarl heims árið 2025. Kjör hans er sögulegt eins og tilfellið er hjá Gidsel og Reistad. Hann er nefnilega fyrsti Portúgalinn sem hlotnast þessi heiður.

Hin þýska Viola Leuchter var þá kjörin besta unga handknattleikskona heims árið 2025. Er þetta í fyrsta sinn sem hún vinnur til verðlaunanna.

Vinningshafar hjá IHF fyrir árið 2025. Mynd/IHF
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -