- Auglýsing -
- Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk fyrir IFK Kristianastad þegar liðið vann Malmö, 33:29, á útivelli í viðureign tveggja efstu liða sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöld. Eftir sigurinn hefur Kristianstad fimm stiga forskot í efsta sæti deildarinnar. Malmö er í öðru sæti en á leik til góða og getur minnkað forskot IFK niður í þrjú stig.
- Birgir Steinn Jónsson skoraði fjórum sinnum í öruggum sigri IK Sävehof á Guif, 31:22, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Leikið var í Partille. IK Sävehof er í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig.
- Guif er í næst neðsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og má mun sinn fífil fegri eftir taprekstur árum saman.
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark í fimm marka tapi Amo HK fyrir Önnereds, 32:27, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöld. Amo HK er í 9. sæti og verður að herða róðurinn á endasprettinum til þess að ná sæti í átta liða úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinn.
- Dagur Sverrir Kristjánsson fyrrverandi leikmaður ÍR skoraði ekki mark fyrir Vinslövs HK þegar liðið gerði jafntefli við IFK Ystads HK, 33:33, í Allsvenskan, næstefstu deild sænska handknattleiksins, í gær. Vinslövs HK er næstneðst í deildinni með níu stig eftir 21 leik af 26, sex stigum á eftir Drott sem er í 12. og þriðja neðsta sæti.
- Sveinn Jóhannsson lék með Chambéry í 16 mínútur og skoraði tvö mörk þegar liðið vann PAUC, 31:29, á heimavelli í frönsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Chambéry er í 5. sæti með 18 stig eftir 16 leiki.
- Jón Ísak Halldórsson skoraði ekki mark fyrir Lemvig–Thyborøn Håndbold í 10 marka tapi fyrir Skive á heimavelli, 41:31, í næstefstu deild danska handknattleiksins í gærkvöld. Jóni Ísaki var einu sinni vikið af leikvelli. Lemvig er í sjöunda sæti af 14 liðum deildarinnar með 21 stig eftir 20 leiki.
- Auglýsing -



