- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Bjarni Fritzson strunsaði af velli

- Auglýsing -

Handboltahöllin á Handboltapassanum gerði í gærkvöldi upp 18. umferð Olísdeildar karla. Í umfjöllun um leik ÍR og Fram voru þrjú atvik sem ÍR-ingar voru ósáttir við tekin fyrir. ÍR-ingum þótti halla á sitt lið í öllum þremur atvikum. ÍR tapaði leiknum að lokum 26:28.

„Ekki í fyrsta sinn í vetur. Bjarni Fritz, hann strunsar út í leikslok og tekur ekki höndina á dómurum eða neinum,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon.


„Hann horfir líka undan þegar hann mætir dómurunum þarna,“ sagði Vignir Stefánsson, sérfræðingur Handboltahallarinnar.

„Þeir voru mjög ósáttir við dómarana ÍR-ingarnir eftir leik en manni finnst bara reglan vera að taka í höndina á dómurunum, þjálfaranum í hinu liðinu og leikmönnum.

Þú ert örugglega ekkert sérstaklega ánægður með þig að rölta beint út,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar.

Verður líka að horfa í eigin barm

„Hann er að reyna að gefa eitthvað í skyn og gefa eitthvað „statement“ því síðan sá maður viðtöl eftir leik og það fyrsta sem hann segir í viðtölum er að hann sé brjálaður.


Liðið hans átti frábæran leik í 50 mínútur. Þeir köstuðu þessu síðan frá sér. Hann verður kannski líka að horfa í eigin barm og á sína menn finnst mér,“ sagði Vignir einnig.


Umræðu um atvikin þrjú, Bjarna Fritzson þjálfara ÍR og erfiða leikjadagskrá ÍR-inga fram undan má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -