Íslensku þjálfararnir þrír sem starfa í þýsku 1. deildinni, sterkustu deild heims, fengu allir til sín nýja leikmenn fyrir síðari hluta tímabilsins áður en vetrar félagaskiptaglugganum var lokað í gær.
Þegar hefur verið greint frá hvalreka á fjörur HSG Wetzlar, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, en sænski markvörðurinn Andreas Palicka skrifaði undir samning út tímabilið. Kom hann frá Kolstad í Noregi og fer svo til Füchse Berlín eftir tímabilið.
Wetzlar, sem er í fallsæti, hafði í nógu að snúast í félagaskiptaglugganum og samdi einnig við Phil Spandau, sem kom frá TV Hüttenberg í þýsku B-deildinni, og Tristan Kirschner á frjálsri sölu.
Annað lið sem er í harðri fallbaráttu, þremur stigum fyrir ofan Wetzlar og fallsæti, er Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar.
Arnór Þór fékk Fynn Hangstein til liðs við sig frá ThSV Eisenach og Kim Voss-Fels frá VfL Eintracht Hagen. Eisenach leikur í 1. deild og Hagen í B-deild.
Guðjón Valur fékk til sín Svía
Þá fékk Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari VfL Gummersbach, Svíann Ludvig Hallbäck frá Frisch Auf! Göppingen sem leikur einnig í þýsku 1. deildinni.
Gummersbach er að berjast í efri hlutanum og er nú í sjötta sæti þegar 13 umferðir eru óleiknar.
Fjórði íslenski þjálfarinn, Heiðmar Felixson, er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf sem fékk engan nýjan leikmann til liðs við sig í glugganum. Hannover-Burgdorf er í níunda sæti.




