- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllinn: Synd að nýta ekki stórleik Sifjar

- Auglýsing -

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum í gærkvöldi var rætt um stórbrotna frammistöðu Sifjar Hallgrímsdóttur í marki ÍR þegar liðið tapaði með einu marki fyrir Val , 18:19, í 17. umferð Olísdeildarinnar í Skógarseli á laugardaginn.

„Það er ekki oft sem þú vinnur markmannsleikinn á móti Valsliðinu. Það er synd að ná ekki að nýta það því snýst í rauninni um það að ÍR-liðið tapar 17 boltum í leiknum. Fullt af þessu eru óþvingaðir boltar,“ sagði Ásbjörn Friðriksson, sérfræðingur Handboltahallarinnar.


Sif gerði sér lítið fyrir og varði 16 skot, þar af þrjú af fjórum vítaköstum Vals, og var með tæplega 46% hlutfallsmarkvörslu.

„Það er afrek að tapa bara með einu. Vörn og markvarsla voru til fyrirmyndar,“ sagði Vignir Stefánsson, annar sérfræðingur Handboltahallarinnar, um frammistöðu ÍR í leiknum.


Umræðu um frammistöðu Sifjar og ÍR ásamt tveimur glæsilegum vippumörkum Ásthildar Jónu Þórhallsdóttur fyrir Val í leiknum má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -