- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Handboltahöllin: Eiginlega ótrúleg frammistaða hjá Hauki Inga

- Auglýsing -

HK vann geysilega mikilvægan 36:31 sigur á Þór Akureyri í 18. umferð Olísdeildar karla síðastliðinn föstudag og spyrnti sér þannig frá neðstu liðunum og fór upp í áttunda sætið. Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var fjallað sérstaklega um frábæra frammistöðu Brynjars Vignis Sigurjónssonar í marki HK og sömuleiðis Hauks Inga Haukssonar, sem skoraði  11 mörk fyrir HK.

„Hann tekur mjög mikilvæga bolta reglulega út leikinn. Hann er með 14 varða bolta á þessum tæpu 40 mínútum sem hann spilar. Hann er að verja víti,“ sagði Vignir Stefánsson, sérfræðingur Handboltahallarinnar, um Brynjar Vigni.


„Ég kem eiginlega alltaf inn á það en það er þvílíkur meðbyr þegar markmaðurinn þinn fer í gang. Þá lætur hann í sér heyra og rífur hina með sér. Brynjar Vignir var ótrúlega góður allan leikinn,“ bætti Vignir við.


„Svo varstu með virkilega góða frammistöðu, Haukur Ingi, sem gladdi augað,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon.

„Já, eiginlega ótrúlega frammistöðu. Í fyrri hálfleik held ég að hann hafi verið með níu mörk úr níu skotum. Hann gerir eiginlega það sem hann vill í leiknum,“ sagði Vignir um Hauk Inga.

Umræðu um HK og leikmenn liðsins sem sköruðu fram úr í leiknum má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -