Keppni í Olísdeildum karla og kvenna heldur áfram í kvöld þegar þrír leikir fara fram. Tveir leikir fara fram í 19. umferð Olísdeildar karla og einn í 18. umferð Olísdeildar kvenna. Hægt verður að horfa á alla þrjá leikina á Handboltapassanum.
Stjarnan, sem sogast hefur jafnt og þett niður í fallbaráttu Olísdeild karla sækir Aftureldingu heim að Varmá klukkan 19. Aftureldingarliðið hefur ekki farið vel af stað eftir áramót og tapað þremur viðureignum.
Stórleikur umferðarinnar verður á Ásvöllum klukkan 19.30 í kvöld þegar Haukar og FH mætast. Aðeins munar einu stigi á liðunum eftir 18 umferðir. Haukar eru í öðru sæti með 26 stig en FH er stigi á eftir í þriðja sæti. Liðin mætast aftur eftir viku á sama stað í undanúrslitum bikarkeppninnar.
Haukar verða einnig í eldlínunni í Olísdeild kvenna í kvöld. Hafnarfjarðarliðið sækir KA/Þór heim í KA-heimilið klukkan 19.
Leikir kvöldsins
Olísdeild karla, 19. umferð:
Myntkauphöllin: Afturelding – Stjarnan, kl. 19.
Kuehne+Nagel-höllin: Haukar – FH, kl. 19.30.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Olísdeild kvenna, 18. umferð:
KA-heimilið: KA/Þór – Haukar, kl. 19.




