Orri Freyr Þorkelsson stóð fyrir sínu hjá Sporting Lissabon þegar liðið tapaði stórt fyrir HBC Nantes, 38:27, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í Nantes í Frakklandi í gærkvöldi.
Orri Freyr skoraði sjö mörk úr níu skotum og var næstmarkahæstur hjá Sporting, sem er nú í sjötta sæti riðilsins þegar þrjár umferðir eru óleiknar.
Bjarki Már tapaði í Kielce – Füchse og Aalborg eru komin í átta liða úrslit
Nantes fór með sigrinum upp fyrir Sporting og er í fimmta sæti. Bæði lið eru með tíu stig og eru í prýðis stöðu til þess að tryggja sér sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Tvö efstu liðin, Füchse Berlín og Aalborg Håndbold, hafa tryggt sér sæti í átta liða úrslitum með því að tryggja efstu tvö sæti A-riðils en liðin í 3. – 6. sæti fara í útsláttarkeppnina.
Nantes og Sporting eru sex stigum fyrir ofan Kolstad í sjöunda sæti og því ljóst að erfitt verður fyrir norsku meistarana að ná þeim og komast í útsláttarkeppnina.



