- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Guðjón Valur semur við markvörð Nantes

- Auglýsing -

Karlalið VfL Gummersbach, sem Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar, hefur samið við spænska landsliðsmarkvörðinn Ignacio Biosca um að ganga til liðs við félagið frá HBC Nantes í sumar. Skrifar Biosca undir tveggja ára samning við VfL Gummersbach.

Biosca er þrítugur og lék með Spáni á Evrópumótinu í Danmörku, Svíþjóð og Noregi í upphafi árs. Honum er ætlað að fylla skarð Króatans Dominik Kuzmanovic, sem gengur til liðs við SC Magdeburg í sumar.


Tilkynnt var um áætlaða komu Biosca á heimasíðu VfL Gummersbach í dag og um leið var staðfest að Kuzmanovic færi til SC Magdeburg.

Með Gummersbach leika Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson, en samningur þess síðarnefnda rennur út í sumar. Garðar Ingi Sindrason gengur svo til liðs við félagið frá FH í sumar.

Spænska stórstjarnan Alex Dujshebaev gerir slíkt hið sama í sumar, kemur þá frá Industria Kielce í Póllandi, og eru því spennandi tímar fram undan hjá Guðjóni Val og lærisveinum hans.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -