Þýski handboltamaðuronn Nils Kretschmer hefur ákveðið að snúa ekki aftur á keppnisvöllinn þegar keppnisbanni hans vegna ólöglegrar lyfjanotkunar lýkur í desember árið 2027. Kretschmer heldur úti vinsælum Instagramaðgangi og einbeitir sér nú alfarið að því að vera samfélagsmiðlastjarna.
Í samtali við Handball World staðfesti hann að atvinnumannsferlinum í handbolta væri lokið. Í viðtali við Lübecker Nachrichten sagði Kretschmer svo að mikil tækifæri væru í samfélagsmiðlum.
Dæmdur í fjögurra ára bann vegna lyfjanotkunar
„Ég byrjaði mjög snemma á samfélagsmiðlum, sá möguleikana í þeim og þá sérstaklega utan handboltans. Samfélagsmiðlar eru framtíðin. Þeir hafa ávallt verið frábær leið fyrir mig til þess að slaka á og vera skapandi og virkur á annan hátt,“ sagði hann við Lübecker Nachrichten.
Getur lifað alfarið af Instagram
Kretschmer féll á lyfjaprófi árið 2024 og viðurkenndi þá að hafa innbyrt ólögleg lyf í því skyni að auka testosterónmagn sitt.
Hann er með 427.000 fylgjendur á Instagram og veitir þar að eigin sögn ráðgjöf varðandi lífstíl, tísku og líkamsrækt í samstarfi við hin ýmsu fyrirtæki, þá sér í lagi tískufyrirtæki.
Á meðan leikmannaferli hans stóð hafði Kretschmer látið hafa það eftir sér að hann gæti lifað alfarið á því að vera samfélagsmiðlastjarna.




