Evrópumeistarar og Íslendingalið SC Magdeburg hefur samið við króatíska markvörðinn Dominik Kuzmanovic um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Skrifar hann undir fimm ára samning, sem er í lengra lagi innan handboltans.
Kuzmanovic, sem er 23 ára gamall, er keyptur frá öðru Íslendingaliði, VfL Gummersbach, og hafði þýski miðillinn Sport Bild greint frá því að upphæðin gæti numið allt að 700.000 evrum, jafnvirði tæplega 102 milljóna íslenskra króna.
Guðjón Valur semur við markvörð Nantes
Kuzmanovic, sem var valinn besti handknattleiksmaður Króatíu árið 2025, mun mynda markvarðapar með landa sínum og jafnaldra Matej Mandic hjá Magdeburg.
Magdeburg er sem stendur á toppi þýsku 1. deildarinnar og er komið áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu, þar sem liðið að titil að verja.
Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson leika allir með Magdeburg.


