- Auglýsing -
- Sveinn Jóhannsson skoraði þrjú mörk fyrir Chambéry þegar liðið náði jafntefli á útivelli við Toulouse, 30:30, í efstu deild franska handknattleiksins í gær. Sveinn lék með Chambéry í liðlega 41 mínútu í leiknum.
- Chambéry situr í 5. sæti deildarinnar með 20 stig eftir 17 leiki. Toulouse er stigi á eftir í sjötta sæti. Nantes og PSG eru efst og jöfn að stigum með 31 stig hvort. PSG á leik til góða á Nantes.
- Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard þegar liðið lagði Krems, 35:32, á heimavelli í 14. umferð austurrísku 1. deildarinnar í gærkvöld. Tryggvi Garðar Jónsson skoraði ekki mark en átti eina stoðsendingu. Honum var þrisvar sinnum vikið af leikvelli.
- Alpla Hard er í öðru sæti deildarinnar með 16 stig eftir 14 leiki. Ferlach er efst með 19 stig eftir 13 leiki eins og Linz sem situr í þriðja sæti með 16 stig. Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla Hard.
- Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark í sigurleik Elverum á Bækkelaget, 33:26, í Terningen Arena í Elverum í gærkvöld. Elverum hefur sex stiga forskot á toppi norsku úrvalsdeildarinnar þegar sex umferðir eru eftir. Kolstad, sem er í öðru sæti og á leik inni á Elverum.
- Tjörvi Týr Gíslason skoraði tvö mörk og var einu sinni vikið af leikvelli þegar HC Oppenweiler/Backnang tapaði fyrir TUSEM Essen, 29:26, á heimavelli í 2. deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. HC Oppenweiler/Backnang er í neðsta sæti deildarinnar með tvö stig eftir 20 leiki, tvö jafntefli og 18 töp.
- Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -


