- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Solla sagði að ég þyrfti að vera meiri frekja“

- Auglýsing -

Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, er markahæsti leikmaður Olísdeildar kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir. Hún hefur sýnt mikinn stöðugleika og verið einn besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.

Ísland mætir Svartfjallalandi í tveimur leikjum í undankeppni EM 2026 í byrjun næsta mánaðar og hefur Sara Dögg leikið svo vel að hún var valin í landsliðið í fyrsta sinn fyrir verkefnið.

Ótrúlega þakklát að hafa verið valin í fyrsta sinn


Framfarirnar hafa verið miklar hjá Söru Dögg, sem er 25 ára gömul, og skrifar hún þær mikið til á að hafa byrjað að treysta í auknum mæli á sjálfa sig. Þjálfarar Söru Daggar hjá ÍR, þá sérstaklega Sólveig Lára Kjærnested, sögðu henni að vera eigingjarnari.

Oft komin í gegn þegar ég gaf boltann

„Ég byrjaði rosalega mikið að hugsa um andlegu þættina og reyna að byggja upp sjálfstraust. Svo var Solla alltaf að segja við mig að ég þyrfti sjálf að vera meiri frekja. Þannig að ég einblíndi líka svolítið á það því allir þjálfararnir sem hafa verið með mig í ÍR hafa sagt við mig að ég hafi oft verið komin í gegn þegar ég var að gefa boltann.

Þau voru öll að segja mér að ég ætti að vera meiri frekja, sérstaklega Solla sem var mjög mikið að segja það við mig. Ég pældi mikið í því og svo pældi ég í því að byggja upp andlegu þættina, hvernig ég var að hugsa í leikjum og alls konar þannig,“ segir Sara Dögg í samtali við handbolta.is.

Frábært lið og mikill efniviður

ÍR hefur átt gott tímabil og situr sem stendur í fjórða sæti Olísdeildarinnar, einu stigi á eftir Haukum í þriðja sæti.

Ertu ánægð með tímabilið hingað til með ÍR?

„Já, klárlega. Ég er mjög ánægð þó að ég væri nú alveg til í að við hefðum unnið nokkra leiki sem mér líður eins og við hefðum átt að vinna. En mér finnst við hafa vaxið mjög mikið sem lið og mér finnst við allar vera búnar að bæta okkur.

Mér finnst þetta frábært lið og rosa mikill efniviður í því. Mér finnst mjög gaman að spila með þeim og er mjög ánægð með tímabilið þó ég væri alveg til í að hafa unnið fleiri leiki,“ segir Sara Dögg Hjaltadóttir við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -