„Ég held að Haukarnir muni vinna á endanum en Framarar eiga eftir að fá allt liðið sitt til baka. Maður veit ekki hvort Sunna [Jónsdóttir] eða Dagmar [Guðrún Pálsdóttir] verði með. Annars held ég að Haukarnir munu hafa þetta,“ segir Grétar Áki Andersen, þjálfari kvennaliðs ÍR, í samtali við handbolta.is er hann var beðinn um að rýna í viðureign Hauka og Fram í undanúrslitum Powerade bikarsins í kvöld.
„Þetta verður alltaf hörkuleikur. Þetta er miklu meira spennandi leikur en seinni leikurinn. Þessi leikur gæti farið í framlengingu og eitthvað skemmtilegt. Þarna ertu með lið á svipuðu róli,“ segir Grétar Áki.
Undanúrslitin og úrslitin fara fram í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum, heimavelli Hauka. Haukar og Fram ríða á vaðið klukkan 18 og Valur mætir svo KA/Þór klukkan 20.15.

Búið að ganga mjög vel eftir áramót
Fram vann eins marks sigur á ÍR í átta liða úrslitunum og Haukar unnu á sama tíma öruggan sigur á Víkingi Reykjavík. Haukar eru í þriðja sæti Olísdeildarinnar með 21 stig og Fram í er í fimmta sæti með 17. Spurður nánar út í hvers vegna hann telji ríkjandi bikarmeistara Hauka sigurstranglegri segir Grétar Áki:
„Það er bara taktur í þeim og þær eru búnar að vera góðar. Það munar um það að koma inn í leikinn á skriði. Haukum er búið að ganga mjög vel eftir áramót. Á meðan voru Framararnir ekki með Sunnu eða Dagmar á móti okkur.
- Miðasala er í fullum gangi á Stubbi.
Þær eru þannig séð nýbúnar að tapa á móti Haukunum og þá var Harpa María [Friðgeirsdóttir] ekki með. Þetta er búið að vera svolítið erfitt fyrir Fram eftir að þær unnu okkur í bikarnum.
Það eru búnir að vera tveir hörkuleikir á milli þeirra í deildinni. Liðin gerðu jafntefli í fyrsta leiknum á Ásvöllum, síðan vinnur Fram á heimavelli og síðan vinna Haukarnir núna nýlega stórt á heimavelli. Þetta verður spennandi leikur.“
Hörkuleikur sem gæti farið í framlengingu



