Einar Jónsson, þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara karla í Fram, er fullur tilhlökkunar fyrir Hafnarfjarðarslag FH og Hauka í fyrri undanúrslitaleik Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum klukkan 18 í kvöld.
„Þetta er náttúrlega stærsti leikur tímabilsins, með fullri virðingu fyrir öðrum liðum. Þetta er risa, risastór leikur og verður áhugavert að fylgjast með honum. Það verður að segjast alveg eins og er. Ég hefði viljað fá þetta sem úrslitaleik og að einhverju leyti er þetta úrslitaleikur,“ segir Einar í samtali við handbolta.is, beðinn um að rýna í viðureignina.
Haukar fengu FH í heimsókn á Ásvelli í Olísdeildinni fyrir viku síðan og steinlágu gegn erkifjendunum úr Kaplakrika, 25:32.

Sá leikur var reyndar hundleiðinlegur
„Þetta verður geggjaður leikur. Bæði lið eru búin að vera flott í vetur. Nú fáum við „back to back“ einvígi þar sem liðin voru að mætast í deildinni fyrir stuttu síðan, einmitt á Ásvöllum líka. Sá leikur var reyndar hundleiðinlegur en ég á von á alvöru sprengju á fimmtudag [í kvöld],“ segir hann.
Einar býst síður en svo við sömu einstefnu og var uppi á teningnum í deildarleik liðanna fyrir viku síðan. Raunar þvert á móti.
„Nei, ef þú vilt fá einhverja spá þá held ég að Haukar vinni þennan leik. Þeir voru langt frá sínu besta síðast og það er eitthvað sem segir mér að þeir muni koma með allt annað hugarfar inn í þennan leik og muni vinna hann. Ég ætla að henda í framlengingu meira að segja,“ segir Einar Jónsson í samtali við handbolta.is.



