- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Reiknar með að botnlið Olísdeildarinnar fari í bikarúrslit

- Auglýsing -

„Þessi leikur er líka mjög áhugaverður. KA hefur kannski verið að gera betur heldur en maður reiknaði með í vetur og ÍR kannski ekki staðið undir þeim væntingum sem stóðu til þeirra fyrir tímabilið, í deildinni að minnsta kosti,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara karla í Fram, í samtali við handbolta.is.

Þar var Einar beðinn um að rýna í síðari undanúrslitaleik Powerade bikars karla, viðureign ÍR og KA sem hefst klukkan 20.15 í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld. ÍR er á botni Olísdeildarinnar og KA er í fimmta sæti og búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn.

Á von á sprengju í stærsta leik tímabilsins


„Þetta eru tvö lið á ólíkum stað en samt á ég von á hörkuleik. Mér finnst ÍR ótrúlega flott og skemmtilegt lið. Á sama tíma hefur KA líka verið hrikalega flott og spilað virkilega vel í allan vetur. Ég hugsa að flestir myndu nú veðja á að KA vinni þennan leik en ég held að ÍR vinni,“ segir Einar.

Verður erfitt að fylla skarð Bjarna Ófeigs

Hann telur að stemningin verði á bandi ÍR í kvöld þrátt fyrir erfitt tímabil í deildinni og lítur einnig til meiðslavandræða KA.

„Já, ÍR hefur verið að skora mikið af mörkum og ég reikna með að það verði nú áfram þannig. Þeir þurfa ekki nema að fá smá markvörslu og smá vörn líka, þá held ég að þeir vinni þennan leik. Svo er KA búið að vera í meiðslabrasi undanfarið.

Bjarni Ófeigur [Valdimarsson] var ekki með í síðasta leik, eitthvað vesen á puttanum á honum. Svo er sama með hann Morten [Linder], þann örvhenta. Ekki það að Einar Rafn [Eiðsson] kom svo sem mjög sterkur inn í síðasta leik hjá þeim þannig að kannski að hann fylli það skarð.


En ég held að það verði afar erfitt fyrir KA að fylla það skarð sem Bjarni Ófeigur skilur eftir sig. Það eru kannski flestir sem spá KA sigri en ég ætla að spá að þetta verði Haukar – ÍR í bikarúrslitum,“ segir Einar Jónsson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -