- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

GOG  í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar – Veszprém vann án Bjarka

- Auglýsing -

Danska liðið GOG tryggði sér í kvöld sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að gera jafntefli gegn Eurofarm Pelister frá Norður-Makedóníu, 28:28, í 12. umferð B-riðils í Danmörku í kvöld.

GOG er í sjötta sæti B-riðils með níu stig, en liðin í 3. – 6. sæti fara í útsláttarkeppni og freista þess að vinna sér inn sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.


Eurofarm Pelister er fjórum stigum á eftir GOG í fimmta sæti þegar tvær umferðir eru óleiknar en GOG stendur betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna og kemst því áfram.

Öruggt í Ungverjalandi

Í A-riðli vann ungverska liðið One Veszprém öruggan sigur á Dinamo Búkarest, 35:28, og styrkti þannig stöðu sína í þriðja sæti riðilsins.

Þar er liðið með 14 stig og hafði fyrir nokkru síðan tryggt sér sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar. Dinamo er fyrir margt löngu úr leik.

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson var ekki í leikmannahópi Veszprém annan leikinn í röð en hann er að glíma við meiðsli.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -