- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Varði 13 skot en ósátt við eigin frammistöðu

- Auglýsing -

„Þetta er bara léttir. Ég var mjög stressuð fyrir þennan leik. Við unnum þær frekar stórt í deildinni sem er alltaf frekar hættulegt en já, léttir er það fyrsta sem ég hugsa,“ sagði Sara Sif Helgadóttir, markvörður Hauka, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með 32:29 sigri á Fram í undanúrslitum á Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.

Sara Sif átti góðan leik í marki Hauka og varði 13 skot. Var hún með 32% markvörslu en þrátt fyrir það var Sara Sif ósátt við eigin frammistöðu.

Haukar leika til úrslita – unnu Fram í spennuleik


„Mér fannst ég varla mæta til leiks í dag þannig að mér finnst ég skulda stelpunum fullt. Ég er spennt að mæta hérna aftur og fá að keppa strax aftur á laugardaginn og sýna mitt,“ sagði hún.

Er blaðamaður benti Söru Sif á að hún hafi þó varið 13 skot sagði landsliðsmarkvörðurinn:

„Já, ókei. Allt í lagi. Ég vildi samt meira, mér fannst ég eiga meira inni.“

Var aldrei stressuð yfir því

Ætlar Sara Sif að sýna sitt allra besta í úrslitaleiknum gegn Val eða KA/Þór á laugardaginn.

„Já, heldur betur. Ég ætla að ná að njóta meira og vera aðeins léttari á mér í þeim leik.“

Hún býst við því að nú sé skrekkurinn farinn eftir erfiðan undanúrslitaleik. „Já, ég vona það allavega.“


Spurð nánar út í leikinn í kvöld sagði Sara Sif:

„Mér fannst við alltaf ná að svara öllum mörkunum sem við fengum á okkur þannig að ég var einhvern veginn aldrei stressuð yfir því en ég var meira ósátt við sjálfa mig, mér fannst ég bara koma með köflum einhvern veginn. Þetta kom og fór.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -