„Líðanin er geggjuð. Við náttúrlega klúðruðum því í fyrra þannig að það er rosa gott að vera mætt aftur í úrslitaleikinn,“ sagði Hildur Björnsdóttir, fyrirliði Vals, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með öruggum sigri á KA/Þór í undanúrslitum í Kuehne+Nagel höllinni í kvöld.
Valur féll úr leik í undanúrslitum á síðasta tímabili og það er eitthvað sem leikmenn hafa ekki gleymt svo glatt. Vonbrigði síðasta tímabils voru þeim ofarlega í huga í kvöld.
Valur leikur til úrslita í bikarnum í sautjánda sinn
„Já algjörlega. Þetta var eini titillinn sem við tókum ekki og það situr alveg fast í okkur. Þannig að það gaf okkur alveg auka hvatningu í kvöld,“ sagði Hildur.
Liðið verður aldrei lakara
Spurð nánar út í leikinn, sem lauk með sjö marka sigri Vals, sagði hún:
„Upplifun mín af leiknum var alveg fín. Við byrjuðum brösuglega og þetta var jafn og góður leikur. KA/Þór er með mjög gott lið og þær voru mjög sterkar í dag.
Svo vinnum við okkur einhvern veginn aftur inn í þetta þegar líður á fyrri hálfleik. Við byrjum síðari hálfleikinn ekki nógu vel og síðan siglum við þessu í höfn.“
Nánast allir útispilarar Vals komust á blað í kvöld og því var um sannkallaðan liðsheildarsigur að ræða.
„Algjörlega, það bara kemur maður í manns stað og liðið verður aldrei lakara þó það komi einhver annar inn á, sem er rosalega gott,“ sagði Hildur, sem er spennt fyrir því að mæta Haukum í úrslitum á laugardag.
„Mér líst mjög vel á það. Það er svona rígur á milli okkar þannig að þetta verður mjög skemmtileg viðureign.“



