Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þórs, var stoltur af liði sínu eftir að það tapaði fyrir Val, 29:22, í undanúrslitum Powerade bikars kvenna í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.
„Viðbrögðin mín eru þau að fyrri hálfleikurinn hjá okkur var frábær. Nokkrir boltar sem fara í slánna, frábærar hreyfingar og sóknarleikur sem gerði það að verkum að við vorum ekki nær þeim en það. Svo í seinni hálfleik varð þetta aðeins erfiðara,“ sagði Jónatan í samtali við handbolta.is.
Valur leikur til úrslita í bikarnum í sautjánda sinn
„Við vissum það að um leið og við missum boltann og gerum mistök, við vorum með fleiri tapaða bolta í seinni hálfleik heldur en í fyrri, það kostar. Mér fannst við gefa allt í þetta, sem ég var að vonast eftir. Mér fannst liðið mitt ekki vera lítið í sér. Mér fannst þær vera stórar. Við gáfum allt í þetta,“ hélt hann áfram.
Hefði viljað hanga aðeins lengur í þeim
Valur náði að dreifa álagi leikmanna sinna vel enda komust nánast allir útispilarar liðsins á blað. Slík er breiddin hjá Val.
„Ég hefði viljað hanga aðeins lengur í þeim í seinni. Þá hefði kannski komið smá stress hjá þeim. Ég vissi það að við hefðum þurft að fá alveg toppframmistöðu til að vinna þær. Við vorum nálægt því framan af leik og svo fór aðeins að draga af þessu. En ég er stoltur af liðinu mínu.
Þetta skilur klárlega á milli. Við reynum að rótera líka en ég er sammála. Valur er bara með frábæran hóp og þegar þær ná upp sínum leik er erfitt að eiga við þær. Ég hefði viljað hanga aðeins lengur í þeim, þá hefði þetta getað orðið leikur,“ sagði Jónatan Þór Magnússon í samtali við handbolta.is.



