- Auglýsing -
Elvar Ásgeirsson átti frábæran leik fyrir Ribe-Esbjerg þegar liðið heimsótti lærisveina Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni og hafði öruggan sigur, 39:31, í kvöld.
Elvar skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og var markahæstur allra í leiknum. Auk þess gaf hann fimm stoðsendingar og reyndist því Holstebro ansi illviðráðanlegur.
Jóhannes Berg Andrason er leikmaður Holstebro og skoraði eitt mark úr þremur skotum.
Ribe-Esbjerg fór með sigrinum úr 13. og næstneðsta sæti upp í 11. sæti þar sem liðið er með 16 stig. Holstebro er áfram í sjöunda sæti með 22 stig.
- Auglýsing -



