„Það er mikill léttir. Þetta er búið að vera svakalega erfið vika andlega eftir þetta tap á móti þeim hérna þar sem við mættum með litla ákefð og skutum Danna [Daníel Freyr Andrésson] eiginlega í landsliðið,“ sagði Ólafur Ægir Ólafsson, leikmaður Hauka, í samtali við handbolta.is eftir að liðið vann erkifjendurna í FH 25:21 í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í köld.
„Í dag vorum við staðráðnir í að gera það ekki þó hann hafi verið góður. En það var bara ákefðin í vörninni og viljinn til að vinna fyrir næsta mann. Í sóknarleiknum var mjög fínt flæði. Þetta var mjög gott,“ hélt Ólafur Ægir áfram.
Ákafi Hauka fleytti þeim í úrslit í 10. sinn – sóknarleikurinn brást FH
Honum fannst Haukar gera vel í að halda FH í skefjum í leiknum eftir að hafa tapað stórt fyrir sama liði á sama velli í Olísdeildinni í síðustu viku.
„Þetta var flottur, heilsteyptur leikur. Mér fannst við alltaf geta náð meira forskoti en við vorum sjálfum okkur verstir oft og tíðum. En í heildina var þetta heilsteypt og góð frammistaða varnarlega. Markvarsla fylgir.“
Þurfum að svara kallinu
ÍR og KA mætast í hinum undanúrslitaleiknum í kvöld og kvaðst Ólafur Ægir, sem var jafnmarkahæstur hjá Haukum með sjö mörk, ekki eiga sér neinn óskamótherja.
„Í raun og veru ekki. Það er bara bæði betra. Það er alltaf þannig.“
Tilhugsunin um að hampa bikarmeistaratitli á heimavelli á laugardag heillar hann mjög.
„Heldur betur. Ég er búinn að vera hérna síðan 2019 og er búinn að vinna einn deildarmeistaratitil. Hjá félagi eins og Haukum er það bara ekki boðlegt. Núna þurfum við leikmenn að svara kallinu og skila þessu í hús,“ sagði Ólafur Ægir Ólafsson í samtali við handbolta.is.



