- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tilfinningin verður ekki mikið verri

- Auglýsing -

Einar Rafn Eiðsson, leikmaður KA, var ansi niðurlútur er hann ræddi við handbolta.is eftir eins marks tap fyrir ÍR í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.

„Tilfinningin er hræðileg. Hún verður ekki mikið verri. Ég veit ekki hvað ég á að segja. Þetta er bara hræðilegt,“ sagði Einar Rafn.


Eftir að hafa verið að elta nánast allan leikinn náði KA að komast einu marki yfir undir lokin. ÍR sneri hins vegar við taflinu á ný og vann sætan sigur.

Náum aldrei upp okkar leik

Hvað breyttist hjá ykkur á þessum góða kafla?

„Við fáum nokkur stopp í vörninni en við náum samt aldrei upp okkar leik fannst mér. Ég er eiginlega orðlaus. Hrós á ÍR-ingana og allt það en við vorum sjálfir okkur verstir í dag. Það má alveg segja það,“ sagði hann.


Spurður hvernig KA-menn hafi verið sjálfum sér verstir sagði Einar Rafn:

„Ég veit það ekki nákvæmlega en tilfinningin er allavega sú að við spiluðum ekki góðan leik.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -