- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Einhvern veginn alveg sama um að ég skoraði tíu“

- Auglýsing -

„Fyrst og fremst er ég mjög ánægður með liðsheildina í dag. Við fórum vel yfir KA-menn, vorum búnir að stúdera þá vel. Mér fannst við sýna það í dag,“ sagði Jökull Blöndal Björnsson, sem skoraði tíu mörk fyrir ÍR í 32:31 sigri á KA í undanúrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld, í samtali við handbolta.is eftir leikinn.

ÍR er á botni Olísdeildarinnar og hefur margoft í vetur glutrað niður forystu. ÍR-ingar voru með undirtökin svo til allan leikinn en misstu niður forskotið seint í honum og lentu einu marki undir.


Spurður hvernig ÍR hafi unnið sig í gegnum þennan erfiða kafla í leiknum sagði Jökull:

„Við héldum ró. Bjarni [Fritzson þjálfari] sagði okkur að róa, að vera rólegir. Síðan gerðum við bara eitthvað kerfi og skoruðum.“

Bikarinn í Breiðholtið?

Þrátt fyrir að hafa verið markahæstur í leiknum var hann fyrst og fremst ánægður með liðsheildina hjá ÍR í kvöld.

„Ég er mjög ánægður með liðið. Mér er einhvern veginn alveg sama um að ég skoraði tíu. Ég hugsa bara um að við erum komnir í úrslit. Ég er ánægður með það.“


Í úrslitum mætir ÍR liði Hauka á laugardag.

„Við þurfum að fara vel yfir þá, stúdera þá vel og leggja allt í þetta. Gera þetta hundrað prósent sem lið,“ sagði Jökull um úrslitaleikinn sem er í vændum.

Ertu bjartsýnn á að bikarinn fari í Breiðholtið?

„Alltaf,“ sagði Jökull Blöndal Björnsson ákveðinn í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -