Michael Kraus hefur ákveðið að taka handboltaskóna af hillunni, 42 ára að aldri og fimm hálfu ári eftir að skórnir fóru upp í hillu. Kraus hefur samið við bandaríska félagið LA Team Handball Club.
Þjóðverjinn Kraus lék allan sinn feril í heimalandinu með Frisch Auf Göppingen, TBV Lemgo, HSV Hamburg, TVB 1898 Stuttgart og SG BBM Bietigheim. Því reynir hann fyrir sér erlendis í fyrsta sinn á fimmtugsaldri.
LA Team Handball Club hefur að undanförnu samið við gamlar kempur en franski markvörðurinn Mickael Robin, sem er fertugur, og hinn 39 ára gamli Þjóðverji Martin Strobel eru einnig á meðal þeirra sem hafa tekið skóna af hillunni.
Auk þeirra er hinn 37 ára gamli William Accambray búinn að semja við félagið. Liðið hefur brátt leik í bikarkeppni Bandaríkjanna þar sem leikmennirnir gamalreyndu fá að láta ljós sitt skína.



