- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ansi hræddur um að Haukar rúlli yfir ÍR

- Auglýsing -

„Því miður er ég ansi hræddur um að Haukarnir rúlli yfir þann leik,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Fram í karlaflokki, í samtali við handbolta.is er hann var beðinn um að rýna í úrslitaleik Hauka og ÍR í Powerade bikarnum í kvöld.

„Ég vildi að ég gæti einhvern veginn náð að peppa fólk í að þetta verði hörkuleikur en ég held að þetta verði þetta gamla góð að ÍR-ingarnir verði svolítið saddir. Ég held að þetta hafi verið þeirra aðalmarkmið. En auðvitað ætla þeir sér að vinna þetta og ég vona það innilega að þeir gefi Haukunum alvöru leik.


Ég held að innst inni og í hausnum séu þeir bara nokkuð sáttir með þennan árangur. ÍR hefur í gegnum árin, ef við tökum síðustu 10-15 ár, þá hafa þeir tvisvar farið í bikarúrslit og unnið í annað skiptið og tapað naumlega í hitt skiptið,“ sagði hann.

ÍR hefur tvívegis orðið bikarmeistari, árin 2013 og 2005, og komst síðast í bikarúrslit árið 2014 þegar liðið tapaði einmitt fyrir Haukum, 22:21.

Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Stórt skarð sem Baldur skilur eftir sig

ÍR vann KA í sannkölluðum spennutryli í undanúrslitum á fimmtudagskvöld en þar meiddist Baldur Fritz Bjarnason, lykilmaður liðsins, snemma leiks.

„Þetta var rosalegur leikur og svo veit ég ekkert hvað er að honum Baldri. Það er náttúrlega stórt skarð að fylla fyrir ÍR-ingana þó þeir hafi sýnt frábæran karakter og frábæran leik í gær [á fimmtudagskvöld].

Þá er erfitt að halda þannig stöðugleika í gegnum meiðsli lykilmanns. Menn geta unnið staka leiki en ekki til lengri tíma litið,“ sagði Einar.

Spáir Haukum tíu marka sigri

Spurður hvort hann telji að Haukar munu einfaldlega reynast of sterkir á heimavelli sínum, Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum sagði Einar:

„Auðvitað snýst þetta líka um hugarfarið hjá Haukum. Ef Gunni [Gunnar Magnússon þjálfari Hauka] nær að gíra þá inn á að þetta verði ekkert vanmat og svo geta menn líka orðið hræddir við að vinna þetta.

Þetta snýst meira um hugarfarið hjá Haukum í þessum leik. Ég held að ÍR-ingarnir geti bara farið í þetta svolítið léttir, ljúfir og kátir. Að þeir njóti og hafi gaman að þessu.

Vonandi ná þeir að gera alvöru leik úr þessu en Haukarnir hafa allt að vinna. Pressan er öll á þeim, það segir sig sjálft. Ég held því miður að þetta fari 35:25. Ég verð að vera heiðarlegur í minni spá og í þessu öllu saman.“

Leikurinn hefst klukkan 18.30 í kvöld.

  • Miðasala á úrslitaleiki karla og kvenna fer fram á stubb.is.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -