Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld var rætt um torsóttan sigur Aftureldingar á Stjörnunni í 19. umferð Olísdeildar karla. 29:28 sigur Aftureldingar í Myntkaup höllinni að Varmá var sá fyrsti hjá liðinu í fimm leikjum.
„Það var óvænt hetja, Þorvaldur Tryggvason. Hann á þetta bara skuldlaust í lokin með frábærri vörn. Sjáið þið þetta,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon.
„Hann kom frábærlega inn í leikinn síðustu tíu mínúturnar,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson, sérfræðingur Handboltahallarinnar.
Lykke tók Gidsel hreyfinguna
Einnig var rætt um góða frammistöðu Danans unga Oscar Lykke, sem skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum og átti sinn besta leik fyrir Aftureldingu frá því fyrir jól.
„Hann tekur þarna Gidsel hreyfinguna,“ sagði Einar Ingi og annar sérfræðingur Handboltahallarinnar, Ásbjörn Friðriksson, skaut inn í: „Við höfum ekki séð hana síðan fyrir jól.“
„Nei, frábær snúningur. Jólin fóru einhvern veginn misvel í hann og vonandi er að kvikna aftur á honum,“ sagði Einar Ingi einnig um Lykke.
Umræðuna um Aftureldingu má sjá í myndskeiðinu hér að ofan.



