- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Þetta er hræðileg tilfinning“

- Auglýsing -

Rakel Oddný Guðmundsdóttir, leikmaður Hauka, var eðlilega svekkt eftir að liðið glutraði niður forskoti og tapaði að lokum 19:23 fyrir Val í úrslitum Powerade bikarsins í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í dag.

„Þetta er svo súrt. Þetta er hræðileg tilfinning, alveg ömurlegt. Ég veit ekki hvað ég get sagt. Það er ógeðslega súrt af því að við vorum fjórum mörkum yfir og missum þetta svo niður. Þetta er súrt,“ sagði Rakel Oddný í samtali við handbolta.is eftir leikinn.

Eftir að hafa komist í 18:14 hrundi leikur Hauka sem skoruðu aðeins eitt mark síðasta stundarfjórðunginn.

Lærum vonandi af þessu

Hvað gerðist á þessum kafla?

„Hafdís [Renötudóttir] fer að verja og þær eru náttúrlega ógeðslega gott lið með fullt af reyndum leikmönnum. Við missum þetta bara niður, sem er ömurlegt en vonandi lærum við af því.

Það er það eina sem við getum tekið út úr þessum leik. Það eru margar að spila sinn fyrsta úrslitaleik í bikarnum þó það hafi margir verið hérna síðast. Það eina sem við getum tekið út úr þessum leik er að læra af honum,“ sagði hún.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -