Íslendingalið HSG Blomberg-Lippe vann torsóttan og dramatískan útisigur á HSG Bensheim/Auerbach, 29:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik kvenna í kvöld. Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir létu allar að sér kveða.
Díana Dögg skoraði 2 mörk, átti 5 stoðsendingar og fiskaði tvö víti. Þar að auki vann hún andstæðing einu sinni af leikvelli.
Andrea skorðai 3 mörk, gaf 3 stoðsendingar, fiskað 1 víti, vann andstæðing einu sinni af leikvelli og varði 1 skot í vörninni.
Elín Rósa skoraði 1 mark, fiskað 1 víti og gaf 2 stoðsendingar.
Sigurmark Blomberg-Lippe kom tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir æsilegar lokamínútur. Liðið er í öðru sæti með 30 stig, einu stigi á eftir toppliði BV Borussia Dortmund.
Búið er að leika 17 umferðir í deildinni og eru fjórar umferðir eftir. Blomberg-Lippe er búið að tryggja sæti sitt í átta liða úrslitakeppni um þýska meistaratitilinn og getur enn orðið deildarmeistari.



