Það er að koma að tímamótum hjá karlalandsliði Íslands í handknattleik. Landsliðsþjálfararnir Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason, sem hafa unnið saman sem landsliðsmenn og þjálfarar, verða að fara að huga að kynslóðaskiptum; finna ungar skyttur og styrkja þær til að vinna að stærri verkefnum. Íslendingar hafa verið frægir fyrir að koma fram með öflugar skyttur. Þá verður að fara að finna góða línumenn sem eru sterkir í vörn og sókn. Einnig er kominn tími á að fá fleiri markverði til að standa vaktina í „rammanum.“
Landsliðið náði góðum árangri á EM 2026 í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Það komst í undanúrslit, þar sem liðið mátti þola tap fyrir heimsmeisturum frá Danmörku og lék síðan bronsleik við Króatíu undir stjórn Dags Sigurðssonar. Sú viðureign tapaðist og draumurinn um verðlaunapening rættist ekki.
Flestir voru ánægðir með framgöngu Íslands og sagt var að Ísland ætti orðið lið sem myndi fá „peninga“ á næstu stórmótum. Ísland tryggði sér sæti á HM í Þýskalandi 2027 með árangri sínum á EM á dögunum.
Það er alltaf gott að horfa björtum augum fram á veg en menn mega ekki fara fram úr sér eins og oft hefur gerst.
Það kom fram á EM að þrjú efstu liðin stóðu framar en Ísland á mörgum sviðum. Það kom í ljós að Íslendingar geta ekki ætlast til að vinna „peninga“ ef Íslendingar geta ekki teflt fram öflugum langskyttum eins og Danir, Þjóðverjar og Króatar. Leikmenn sem lyfta sér upp frá punktalínu; og skora með þrumuskotum.
Íslendingar hafa alltaf verið þekktir fyrir öflugar langskyttur sem hafa verið eftirsóttar í Þýskalandi og víða um Evrópu; Svíþjóð, Danmörku, Spáni og Frakklandi.

Þekktir fyrir sín þrumuskot
Þegar Sovétmenn voru að undirbúa sig fyrir að taka þátt í HM í fyrsta skipti 1964 sendu þeir flokk manna á HM í Austur-Þýskalandi 1958 til að safna gögnum, sem áttu síðan eftir að koma þeim til góða. Rússar báðu þá Ragnar Jónsson (FH) um leyfi til þess að kvikmynda þrjár gerðir af „smuguskotum“ sem hann var þekktur fyrir. „Skotharka Ragnars var geysileg og hittnin frábær,“ sagði Sigurður Einarsson, línumaður úr Fram, sem lék með Ragnari í landsliðinu; t.d. hinn fræga leik gegn Svíum 12:10 á HM í Tékkóslóvakíu 1964.
Ragnar, sem hefði styrkt landsliðið í dag mikið, gat skotið úr hvaða stöðu sem hann vildi og var með fjölbreyttan skotstíl. „Ragnar er einn skotfastasti leikmaður sem ég hef leikið gegn,“ sagði danski landsliðsmarkvörðurinn Peter Nielsen hjá Ajax eftir leik þar sem Ragnar skoraði 13 mörk hjá honum.
Gunnlaugur Hjálmarsson hjá ÍR var ein önnur „sleggjan“. Hann varð fjórði markahæstur á HM í Vestur-Þýskalandi 1961, með 22 mörk. Petre Ivanescu, seinna þjálfari Essen, og Tékkinn Rada skoruðu 24 mörk og Rúmeninn Ion Moser 23 mörk.
Gunnlaugur var einn af stóru stjörnunum á HM og var valinn í heimsliðið.
Já, Raggi og Labbi voru þekktar „sleggjur“ þegar leikið var í litla salnum að Hálogalandi við Gnoðarvog. Þeir voru þekktir fyrir sín þrumuskot, eins og Ingólfur Óskarsson úr Fram. „Skotharði vélstjórinn“ úr Víkingi, Jóhann Gíslason, lét markverði svitna er hann var í landi og lék við hliðina á Jóni Hjaltalín Magnússyni og Einari Magnússyni. KR-ingar voru með sínar hávöxnu „sleggjur“ – Þóri Þorsteinsson, Reyni Ólafsson og Heinz Steimann.
„Þið eigið stórkostlegar langskyttur, sem geta hrellt hvaða markverði sem er með geysilegum skotkrafti sínum. Ég held það hljóti að vera stórkostlegt að sjá tvö íslensk lið með svona miklum skotmönnum sem keppa sín á milli,“ sagði norski landsliðsmarkvörðurinn Stein Gruben, sem kom hingað með Fredensberg, en þá höfðu kappar eins og Ragnar, Gunnlaugur, Ingólfur og Guðjón Jónsson og Fram gerðu honum lífið leitt í leikjum í gamla Hálogalandsbragganum.
„Hroðalega skotfastir“
Þegar draumurinn rættist um stóran keppnisvöll og byrjað var að leika í Laugardalshöllinni 1966 streymdu erlend lið hingað til landsins til að leika gegn íslenskum liðum, sem voru með langskyttur á heimsmælikvarða.
„Íslendingar eru hroðalega skotfastir“ sagði sænski landsliðsmarkvörðurinn Mats Thomason, sem kom hingað í keppnisferð með Drott. „Jafnvel smánaggar eru með skot eins og hundrað kílóa menn og vel það.“
Þeir voru þekktir fyrir sín þrumuskot og fóru í víking að fornum sið; herjuðu víðs vegar um Evrópu. Geir Hallsteinsson, FH, Axel Axelsson, Fram, Alfreð Gíslason, KR/KA, Kristján Arason, FH, Viggó Sigurðsson, Víkingi, Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi, Ólafur Einarsson, FH/Víkingi, Patrekur Jóhannesson, Stjörnunni, Sigurður Bjarnason, Stjörnunni, Julian Róbert Duranona, KA, Ólafur Stefánsson, Val, Héðinn Gilsson, FH, Sigurður Sveinsson, Þrótti, Júlíus Jónasson, Val, Aron Pálmarsson, FH, Arnór Atlason, KA, Logi Geirsson, FH.
Allt eru þetta leikmenn, hver og einn, sem væru mikill liðsstyrkur sem skotmenn í landsliði Íslands í dag.
Það er erfitt að gleyma HM-leik Íslands og Frakklands í Laugardalshöllinni 1973, þegar Frakkar voru kjöldregnir, 28:15! Axel skoraði 13 mörk, Geir 10.
Vantar öflugar langskyttur og línumenn
Eins og pistlahöfundur hefur bent á, þá vantar öflugar langskyttur í landsliðshópinn til að gera hann sterkari. Leikmenn sem leika að jafnaði á sama styrk eftir leik og Ísland hefur alltaf átt góða hornamenn, sem eru snöggir, skotvissir og fljótir fram í hraðaupphlaup.
Ísland er líflegt að leikstjórendur sem eru einnig ákafir í sóknaraðgerðum með gegnumbrotum. Stundum geta þeir orðið svo ákafir að þeir ná ekki nægilega góðu sambandi við skyttur sem ná ekki að njóta sín. Það er oft svo mikill hamagangur hjá leikstjórendum að þeir hefta eðlilegt rennsli fyrir skytturnar og loka jafnvel fyrir línuspil.
Mesti skotmaður Íslands um þessar mundir, Ómar Ingi Magnússon, skoraði 55/28 mörk í EM, sem segir að hann hafi skorað 50,91% úr vítaköstum. Í leiknum gegn Króötum skoraði hann 10 af 12 mörkum sínum úr vítaköstum, 83,33% marka sinna.
Það hafði sitt að segja á EM að tvær langskyttur sem Snorri Steinn valdi í upphaflegan hóp sinn voru tvær meiddust: Kristján Örn Kristjánsson, kviðslit, og Þorsteinn Leó Gunnarsson, nári.
Þá þarf Ísland að koma upp línumönnum sem væru í sama gæðaflokki og Björgvin Björgvinsson, Fram, Víkingur, Grambke Bremen, Ólafur H. Jónsson, Valur, Dankersen, Þorgils Óttar Mathiesen, FH, Geir Sveinsson, Valur, Granollers, Avidesa, Montpellier, Wuppertal, Róbert Gunnarsson, Fram, Aarhus, Gummersbach, Rhein-Neckar Löwen, PSG, og Sigfús Sigurðsson, Valur, Magdeburg, Caja Santander.
Þekkja það að fá pening
Það er ljóst að Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari og Arnór Atlason aðstoðarmaður hans hafa báðir verið í vinnu hjá þeim sem þurfa að einbeita sér að byggja upp nýja kynslóð af skyttum, jafnframt því að finna öfluga línumenn, í sama gæðaflokki og ég nefndi hér áðan, sem eru öflugir bæði í sókn og vörn.
Þegar sú uppbygging er klár er hægt að fara að tala um verðlaunapeninga úr bronsi, silfri og gulli.
Snorri Steinn og Arnór eiga þekkta vel til, en þeir fengu silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á EM í Austurríki 2010; Snorri sem leikstjórnandi og vítaskytta og Arnór sem vinstri skytta megin. Þeir voru meðal markahæstu manna í Austurríki. Snorri Steinn var í sjöunda sæti með 36 mörk og Arnór var í fjórða sæti með 39 mörk, eins og Guðjón Valur Sigurðsson. Arnór átti þá flestar stoðsendingar, 27. Hann var í öðru sæti með flest mörk og stoðsendingar, 66. Þeir Snorri Steinn og Arnór þekkja galdra handknattleiksins, eins vel og fingurna á sér.
Skyttur í sjónmáli
Það eru ungar skyttur byrjaðar að banka á dyrnar. Reynir Þór Stefánsson, 21 árs, sem var lykilmaðurinn hjá Fram sem vann tvöfalt sl. keppnistímabil, varð bæði Íslands- og bikarmeistari. Hann er nú orðinn leikmaður með þýska liðinu Melsungen og kominn á fulla ferð eftir veikindi.
Þá eru yngri leikmenn komnir á ferðina. Ómar Darri Sigurgeirsson, 18 ára, FH, Jökull Blöndal Björnsson, 18 ára – að verða 19 ára, ÍR, og Gunnar Róbertsson, 17 ára, Val.
Gunnar, sem er sonur línumannsins öfluga Róberts Gunnarssonar, varð markakóngur á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Skopje í Norður-Makedóníu sl. sumar þar sem Ísland (U17) fagnaði gulli! Gunnar skoraði 43 mörk í fimm leikjum, 8,6 mörk að jafnaði í leik. Hann skoraði 12 mörkum fleiri en næstu menn.
Freyr Aronsson, 17 ára leikstjórandi hjá Haukum, var næstmarkahæstur íslensku piltanna og í sjötta sæti á heildarlistanum með 24 mörk. Freyr er sonur Huldu Bjarnardóttur og Arons Kristjánssonar.
Ómar Darri var þriðji markahæstur íslensku piltanna með 17 mörk.
Vantar markverði
Það er ljóst að það verður að finna út markverði sem eru tilbúnir að leysa Viktor Gísla Hallgrímsson af hólmi. Björgvin Páll Gústavsson stendur ekki alltaf vaktina, þó að hann sé góður.
Sigmundur Ó. Steinarsson.












