- Auglýsing -
- Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur leikmanna Sporting með átta mörk í 13 marka sigri meistaranna á Vitória, 40:27, í portúgölsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Fimm marka sinna skoraði Orri Freyr úr vítaköstum.
- Sporting er með fullt hús stiga eftir 20 leiki í efsta sætideildarinnar. Porto hefur tapað sex stigum og Benfica átta. Porto á leik til góða á Sporting.
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði sex mörk, þar af tvö úr vítaköstum, er Kolstad vann Nærbø, 35:33, í hörkuleik í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Leikið var í Þrándheimi. Sigurjón Guðmundsson varði tvö skot í marki Kolstad þann tíma sem hann stóð vaktina. Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki með vegna meiðsla.
- Kolstad er í öðru sæti deildarinnar með 35 stig eftir 21 leik, fjórum stigum á eftir Elverum. Fimm leikir standa út af borðinu hjá flestum liðum deildarinnar.
- Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fimm mörk fyrir Ryger Stavanger þegar tapaði með eins marks mun, 28:27, fyrir Grenland Topphåndballklubb í næst efstu deild karla í handknattleik í Noregi í gær. Ryger Stavanger, sem Elías Már Halldórsson þjálfar, er næst neðst í deildinni með 10 stig eftir 20 leiki, tveimur stigum á eftir Bjørnar. Sex umferðir eru eftir óleiknar í deildinni.
- Eftir stórleik í Meistaradeild Evrópu á fimmtudagskvöld fékk Viktor Gísli Hallgrímsson frí í gær þegar Barcelona vann Frigoríficos del Morrazo, 35:22, á útivelli í spænsku 1. deildinni í handknattleik. Emil Nielsen og Filip Saric skiptu leiknum á milli sín í marki Barcelona og stóðu fyrir sínu. Þeir voru samanlagt með um 48% hlutfallsmarkvörslu.
- Barcelona er efst með 38 stig eftir 19 leiki, 10 stigum á undan Granollers sem er í öðru sæti.
Myndskeið: Viktor Gísli í liði 12. umferðar Meistaradeildar
- Auglýsing -



