- Auglýsing -
- Guillaume Joli og Vincent Gérard verða í þjálfarateymi franska karlalandsliðsins og starfa með Talant Dujshebaev sem ráðinn var landsliðsþjálfari í síðustu viku.
- Joli og Gérard léku báðir með franska landsliðinu á sínum tíma. Gerard er hugsaður sem markvarðaþjálfari. Fyrstu landsleikir Frakka undir stjórn Dujshebaev verða eftir rúmlega tvær vikur gegn Spánverjum.
- Gríski handknattleiksmaðurinn Savvas Savvas hefur ákveðið að ganga til liðs við Coburg í þýsku 2. deildinni í sumar. Hann hefur undanfarin ár leikið með Olympiakos, m.a. gegn Val í úrslitum Evrópubikarkeppninnar vorið 2024.
- Savvas, sem er 28 ára gamall, lék um árabil í Þýskalandi m.a. með GWD Minden, TV Großwallstadt og ASV Hamm-Westfalen.
- Thomas Mogensen, fyrrverandi landsliðsmaður Danmerkur, hefur óvænt sagt starfi sínu lausu sem íþróttastjóri danska úrvalsdeildarliðsins SønderjyskE eftir fjögurra ára veru.
- Orðrómur er uppi um að Jacob Bagersted taki við en hann ætlar að leggja keppnisskóna á hilluna í sumar og flytja heim til Danmerkur. Bagersted lék lengi í Þýskalandi en kom til SönderjyskE sem leikmaður á sama tíma og Mogensen tók við sem íþróttastjóri félagsins.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -



