„Maður er í smá spennufalli eftir þetta. Þetta var rosalegt og ótrúlega mikilvæg stig. Við spiluðum við þær á HM og sá leikur sat virkilega í okkur. Við komum svo sannarlega og mættum af fullum krafti í þennan leik,“ sagði Elín Klara Þorkelsdóttir við handbolta.is eftir stórkostlegan eins marks sigur á Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 í kvöld.
Elín Klara fór hamförum og skoraði tólf mörk, þar af þrjú úr vítaköstum, ásamt því að gefa þrjár stoðsendingar og fiska þrjú víti.
Stórkostlegur sigur á Svartfellingum
Ísland lék frábærlega í leiknum, þá sér í lagi varnarlega, auk þess sem liðinu tókst í sífellu að finna góðar lausnir í sóknarleiknum, og það án örvhentrar skyttu.
Spiluðum frábæra vörn
„Við erum frekar litlar og snöggar og það er mikilvægt að spila og vinna á okkar styrkleikum. Við gerðum það vel í dag. Við spiluðum frábæra vörn og það var uppleggið.
Við þurftum að mæta ótrúlega grimmar varnarlega og keyra, hlaupa og hlaupa. Við gerðum það sannarlega. Við erum allar í geggjuðu formi og náðum að rótera vel. Það komu alltaf allir ferskir inn á og við náðum að hlaupa á þær,“ sagði Elín Klara.
Aðspurð kvaðst hún vitanlega ánægð með eigið framlag en leikmenn Svartfjallalands áttu í stökustu vandræðum með Elínu Klöru.
„Já, algjörlega. Maður fór einhvern veginn í eitthvað „mode“ og mér fannst allan daginn sem við værum að fara að klára þennan leik. Undir lokin, síðustu tíu mínúturnar, fáum við áhlaup á okkur en einhvern veginn var það tilfinningin að við værum alltaf að fara að klára þetta.“
Förum út með fullt sjálfstraust
Kom smá skrekkur í ykkur undir lokin?
„Já, en svo kláruðum við þetta. Hún [Sara Sif Helgadóttir markvörður] tekur þarna vítið sem var virkilega mikilvægt. Ég gæti ekki verið ánægðari og er ótrúlega stolt,“ sagði Elín Klara.
Ísland ferðast í nótt til Svartfjallalands og mætast liðin aftur í Podgorica á sunnudag.
„Þetta verður erfiður útivöllur en við förum út með fullt sjálfstraust. Það er ekki annað hægt. Sennilega verður full höll og mikil læti þarna úti en við notum það bara með okkur á jákvæðan hátt,“ sagði Elín Klara Þorkelsdóttir í samtali við handbolta.is.
Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja
A-landslið kvenna – fréttasíða.



