Füchse Berlín tryggði sér sigur í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla með því að vinna sterkan útisigur á Aalborg Håndbold, 35:31 í 13. umferð riðilsins í gærkvöldi. Bæði lið voru þegar komin áfram í átta liða úrslit en refirnir frá Berlín tryggðu sér toppsætið.
Mathias Gidsel reyndist Aalborg erfiður ljár í þúfu og skoraði átta mörk fyrir Füchse auk þess sem Dejan Milosavljev varði 17 skot í markinu og var með 35,4% hlutfallsmarkvörslu.
Mads Hoxer var markahæstur hjá Aalborg með átta mörk og Thomas Arnoldsen bætti við sjö.
Orri Freyr skoraði eitt mark í Kielce
Í hinum leik riðilsins í gærkvöldi heimsóttu Orri Freyr Þorkelsson og liðsfélagar hans í Sporting Lissabon lið Industria Kielce til Póllands. Fór svo að Kielce vann 39:33.

Orri Freyr skoraði eitt mark úr þremur skotum í leiknum. Kielce og Sporting voru þegar komin áfram í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar.
Í B-riðli gerðu svo Eurofarm Pelister og PSG 34:34 jafntefli í Norður-Makedóníu og Wisla Plock heimsótti RK Zagreb til Króatíu og vann stórsigur, 34:26.
Wisla Plock og PSG eru komin áfram í útsláttarkeppnina en Pelister og Zagreb eru úr leik.



