- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ída Margrét valin íþróttakona Gróttu

- Auglýsing -

Ída Margrét Stefánsdóttir var á þriðjudagskvöld kjörin íþróttakona Gróttu árið 2025, er árlegt kjör á íþróttafólki félagsins fór fram.

Ída Margrét hefur leikið með Gróttu frá árinu 2022 og myndar fyrirliðateymi liðsin með Katrínu Helgu Sigurbergsdóttur.


Grótta lék í Olísdeildinni á síðasta tímabili en féll niður í Grill 66 deildina eftir harða fallbaráttu auk þess sem liðið komst í undanúrslit Poweradebikarsins.

Langmarkahæst á yfirstandandi tímabili

Ída Margrét, sem er 24 ára vinstri skytta, var markahæsti leikmaður Gróttu á síðasta tímabili og er sömuleiðis langmarkahæst hjá liðinu á yfirstandandi tímabili með 125 mörk í 18 leikjum.

Grótta er á toppnum í Grill 66 deildinni þegar þrjár umferðir eru óleiknar, en liðið er með 32 stig líkt og HK í öðru sæti.

Mikil keppnismanneskja sem getur náð enn lengra

Ída Margrét gekk fyrst til liðs við Gróttu árið 2021 er hún kom að láni frá Val en stoppið reyndist stutt þar sem hún var fljótlega kölluð til baka. Ída Margrét gekk svo alfarið í raðir Gróttu sumarið 2022.

„Á lokahófi handknattleiksdeildar Gróttu í vor þá var Ída Margrét valin mikilvægasti leikmaður liðsins. Ída er mikil keppnismanneskja og leggur sig ávallt alla fram í öll verkefni, tekur leiðsögn vel og getur náð enn lengra á næstu árum.

Það eru virkilega gleðileg tíðindi fyrir jólin að hún ákvað að framlengja samninginn sinn við Gróttu til ársins 2029,“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -