Antoine Óskar Pantano var á árlegu kjöri íþróttafólks Gróttu á þriðjudagskvöld valinn íþróttakarl ársins 2025. Antoine Óskar er aðeins 19 ára gamall en er þrátt fyrir ungan aldur að spila sitt fjórða tímabil með meistaraflokki Gróttu.
Auk þess er hann annar af tveimur fyrirliðum liðsins. Antoine Óskar er leikstjórnandi og lykilmaður í varnarleik Gróttu, sem leikur í Grill 66 deildinni eftir að hafa fallið úr Olísdeildinni á síðasta tímabili eftir harða fallbaráttu.
Ída Margrét valin íþróttakona Gróttu
Alls hefur hann skorað 85 mörk í 20 leikjum fyrir Gróttu í Grill 66 deildinni á yfirstandandi tímabili og er þriðji markahæsti leikmaður liðsins.
Fastamaður og fyrirliði í unglingalandsliðum
Grótta rær nú öllum árum að því að komast aftur upp í deild þeirra bestu en liðið er á toppi Grill 66 deildarinnar með 36 stig og tveggja stiga forskot á Víking Reykjavík, sem á þó leik til góða. Grótta á tvo leiki eftir og Víkingur þrjá.
„Antoine hefur verið fastamaður í unglingalandsliðum Íslands og verið þar fyrirliði. Vegna meiðsla sem hann glímdi við á seinasta leiktímabili gat hann ekki tekið þátt í landsliðsverkefnum síðastliðið sumar. Þar stóð hæst HM í Egyptalandi í ágúst.
Antoine Óskar hefur undanfarin þrjú árin verið þjálfari yngri flokka hjá félaginu og af honum fer virkilega góður orðstír. Hann hefur verið í forgrunni fyrir mikla uppbyggingu og fjölgun í vesturbæjarstarfi yngstu flokka félagsins,“ sagði meðal annars um Antoine Óskar í tilkynningu handknattleiksdeildar Gróttu.



