Arnór Viðarsson og liðsfélagar hans í HF Karlskrona unnu góðan heimasigur á Hammarby IF, hvar Gunnar Steinn Jónsson er í þjálfarateyminu, í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Arnar Birkir Hálfdánsson átti þá góðan leik fyrir Amo HK er liðið tapaði fyrir IFK Skövde HK á útivelli.
Arnór skoraði eitt mark í 31:28 sigri Karlskrona og var sigurinn mikilvægur í baráttu liðsins um að komast í átta liða úrslitakeppni um sænska meistaratitilinn.
Karlskrona er nú í níunda sæti með 24 stig, jafnmörg og Önnereds HK og Ystads IF í sætunum fyrir ofan. Hammarby er í þriðja sæti með 32 stig og er búið að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni þegar þrjár umferðir eru óleiknar.
Arnar Birkir skoraði fjögur mörk fyrir Amo í 32:25 tapi fyrir Skövde. Var hann næstmarkahæstur í liði Amo.
Amo er í tíunda sæti með 19 stig, tveimur stigum fyrir ofan Hallby sem er í einu af þremur sætum sem fara í umspil um að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni.



