Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, viðurkennir fúslega að hann hefði viljað halda starfi sínu áfram. Norska handknattleikssambandið tilkynnti í gær að samningur Wille sem rennur út í sumar verði ekki endurnýjaður.
„Ég gerði öllum það morgunljóst að ég vildi halda áfram. Mér finnst ég enn eiga eftir að gera margt. Fjögur ár hljóma eins og langur tími en ef maður lítur á þetta út frá þróun liðsins er það í reynd ansi skammur tími,“ sagði Wille í samtali við norsku sjónvarpsstöðina TV2.
Wille verður að taka pokann sinn hjá norska landsliðinu
Þegar samningur hans er á enda 1. júlí verða liðin fjögur ár síðan Wille tók við starfinu en árangur liðsins á stórmótum undir hans stjórn þótti ekki viðunandi. Besti árangurinn náðist á fyrstu tveimur mótunum, HM 2023 og Ólympíuleikunum 2024, þegar Noregur hafnaði í sjötta sæti á báðum mótum.
„Ég hefði viljað fá að halda áfram að vinna með A-landsliðinu og þá ekki síst með þá ferla sem við komum á fót hjá öllum karlalandsliðunum. En ég virði það að ég get ekki ákveðið það sjálfur,“ sagði Wille einnig.


