Víkingur Reykjavík tyllti sér á topp Grill 66 deildar karla með öruggum sigri á Selfossi 2, 39:28, í Safamýri í dag. Valur 2 fékk þá Hörð frá Ísafirði í heimsókn í N1 höllina á Hlíðarenda og vann 33:30.
Víkingur er á toppnum með 36 stig eins og Grótta í öðru sætinu. Selfoss 2 er í sjöunda sæti með 18 stig. Valur 2 er í þriðja sæti með 28 stig og Hörður er í sjötta sæti með 20 stig.
Toppliðin tvö eiga einungis tvo leiki eftir í deildinni. Efsta liðið fer beint upp í Olísdeildina og þrjú lið í sætunum fyrir neðan fara í umspil um að komast þangað upp.
Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.
Úrslit leikja dagsins í Grill 66 deild karla:
Víkingur R. – Selfoss 2 39:28 (21:12)
Mörk Víkings: Sigurður Páll Matthíasson 6, Kristján Helgi Tómasson 6, Halldór Ingi Óskarsson 5, Ísak Óli Eggertsson 4, Kristófer Snær Þorgeirsson 4, Þorfinnur Máni Björnsson 4, Arnar Már Ásmundsson 3, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 3, Stefán Scheving Th. Guðmundsson 2, Felix Már Kjartansson 1, Rytis Kazakevicius 1.
Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 8, Daði Bergmann Gunnarsson 6.
Mörk Selfoss 2: Skarphéðinn Steinn Sveinsson 4, Bartosz Galeski 4, Dagur Rafn Gíslason 4, Jónas Karl Gunnlaugsson 4, Aron Leo Guðmundsson 3, Ragnar Hilmarsson 3, Dagbjartur Máni Björnsson 2, Þorleifur Tryggvi Ólafsson 2, Bjarni Valur Bjarnason 2
Varin skot: Egill Eyvindur Þorsteinsson 3, Garðar Freyr Bergsson 3.
Valur 2 – Hörður 33:30 (16:13)
Mörk Vals 2: Bjarki Snorrason 8, Sigurður Atli Ragnarsson 5, Theodór Máni Ragnarsson 5, Dagur Ármannsson 2, Jóhann Ágústsson 1, Kári Steinn Guðmundsson 1, Auðunn Páll Gestsson 1, Logi Finnsson 1, Knútur Gauti Eymarsson Kruger 1, Starkaður Björnsson 1.
Varin skot: Anton Máni Francisco Heldersson 16, Jóhann Ágústsson 2.
Mörk Harðar: Jose Esteves Lopes Neto 10, Endijs Kusners 7, Kei Anegayama 3, Guilherme Carmignoli De Andrade 3, Shuto Takenaka 3, Axel Vilji Bragason 2, Jhonatan C. R. Dos Santos 1, Petr Hlavenka 1.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 5, Hermann Alexander Hákonarson 1.



