- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi illviðráðanlegur er Kristianstad styrkti stöðuna á toppnum

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson átti einu sinni sem áður góðan leik fyrir topplið IFK Kristianstad þegar liðið heimsótti Hammarby IF til Stokkhólms og vann með minnsta mun, 31:30, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Einar Bragi hefur leikið afar vel fyrir Kristianstad á tímabilinu og skoraði sjö mörk fyrir liðið í dag. Var hann næstmarkahæstur í leiknum.


Kristianstad er á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 40 stig, fjórum stigum meira en HK Malmö í öðru sætinu. Malmö á leik til góða á morgun.

Einar Bragi og liðsfélagar hans í Kristianstad eru hins vegar í góðri stöðu í baráttunni um deildarmeistaratitilinn en liðið á aðeins eftir að spila tvo leiki í deildinni áður en átta liða úrslitakeppni um sænska meistaratitilinn fer af stað.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -