- Auglýsing -
Johanna Bundsen, sænskur markvörður Metz, átti stórkostlegan leik fyrir liðið þegar það vann Havre í frönsku 1. deildinni í síðustu viku. Hún varði ekki einungis fjölda skota heldur skoraði hún fimm mörk í einum og sama hálfleiknum.
Bundsen varði 14 skot og var með 50% hlutfallsmarkvörslu og skoraði þá mörkin sín fimm í fyrri hálfleik í 39:14 sigri.
Íslendingar þekkja það vel að markvörður skori mörk í leikjum en það hefur Björgvin Páll Gústavsson til að mynda margoft gert bæði með íslenska landsliðinu og félagsliðum sínum.
Björgvin Páll skoraði til að mynda þrjú mörk í einum leik með Skjern í dönsku úrvalsdeildinni árið 2019.
- Auglýsing -




